Íslenskt hugvit?

Oft er talað um íslenskt hugvit sem jákvæðan hlut en þarna sökkti það okkur. Ætli Aron Kristjáns hefði ekki átt að bíða með að kenna þeim þetta fyrr en eftir HM allavega. Íslendingar framarlega á öllum sviðum, nema fótbolta, er talað um og þarna kenndum við þeim að vinna okkur en nóg af gremju núna.

Maður er rosalega stoltur af strákunum þarna í Þýskalandi, þeir hafa staðið sig frábærlega og gáfust ekki upp fyrr en í fulla hnefana á móti góðu liði Dana. Maður fyllist bara þjóðarstolti hérna í Danmörku. En frábær leikur í gær, maður var með öran hjartslátt allan leikinn og tómu Ceres flöskurnar byrjuðu að safnast saman hérna í kotinu. Svo var spennufallið svo mikið að ég man ekki eftir meiru eða kannski var það bjórinn..

Annars erum við Helena að spá í að fara til Köben um helgina og gera eitthvað skemmtilegt svo ég verð einungis í kallfæri í gegnum gemsann, danska númerið, fyrir þá sem vilja slúðra einhverju í mig áður en ég kem á klakann aftur.

En jæja, áfram Ísland!


mbl.is HM: Íslenskt hugvit á bak við sigurmark Dana
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Daði Már Sigurðsson

En voru þeir ekki búnir að vera að gera þetta allan leikinn? Allavega var helvítis skyttan þeirra með nógu mörg mörk úr langskotum.

Það var ansi hart að tapa svona...en hvað hefði gerst ef það hefði aftur verið jafnt? Önnur framlenging eða vító?

Daði Már Sigurðsson, 31.1.2007 kl. 15:00

2 Smámynd: Kristinn Þór Valtýsson

Ég held önnu framlenging án þess að ég viti það en ætli hjartað í manni hefði þolað meiri spennu..

Kristinn Þór Valtýsson, 31.1.2007 kl. 16:27

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

KiddiK.blog.is

Höfundur

Kristinn Þór Valtýsson
Kristinn Þór Valtýsson
Jan. 2012
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30 31        

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (28.1.): 0
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 6
  • Frá upphafi: 302

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 6
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband