22.2.2007 | 13:16
Nú er..
aftur aðeins að lægja í skólanum og maður fer að anda aðeins léttar. Miðönnin loksins búin og verkefnaskil og próf búin í bili sem er kostur. Maður hefur gert lítið annað þessa dagana en að lesa í bókum, spila póker og horfa á Heroes og Prison Break. Núna er hinsvegar komin smá pása og maður fer að spila meiri póker og kannski Fifa einstöku sinnum, maður þarf að fara að mana strákana í Fifa eitt kvöldið núna og gefa Heiðari 302. tækifærið til að vinna mig og Daða því það gengur bölvanlega hjá honum og hvet ég alla til að skoða ofurbloggið hjá Heiðari í tilefni bolludagsins í vikunni því þá eiga allir að óska honum til hamingju enda er hann bolla.
En nú fara mál aðeins að skýrast í skólamálum og er ég að fara að sækja um í skóla í Århus næsta haust og er þar eftur á blaði Aarhus School of Business, mjög spennandi. Hitti konu úr skólanum í Háskólabíó síðustu helgi sem ætlar að hjálpa mér í gegnum þetta process og reyna að fá allt metið fyrir mig úr HÍ. Svo næst er að bara að fylla út KOT umsókn og senda til DK, svo er bara að vona það besta um að komast inn og fá allt metið, en þá á ég 2 ár eftir í BSc gráðu og koma þá fyrirtækin í hópum á eftir mér til að nýta þessa ónýttu auðlind sem felast í hæfileikum mínum. Annars bíð ég bara spenntur þessa dagana eftir að Helena mín kíki heim á kexið til mín í 10 daga í lok mars, hún verður yfir páskana og verður það án efa kósý en það líður að því að við búum nú aftur saman, get ekki beðið eftir því enda einmannalegt að búa einn þegar maður er orðinn vanur að búa með svona orkubolta eins og henni. En ætli það sé ekki best að fara að drífa sig niður í skóla og byrja á næsta verkefni sem á að skila 30. mars en í þetta skiptið er gott að vera tímanlega í því því Helena kemur víst heim 29. og nenni ég nú ekki að vera að klára verkefni fyrsta kvöldið okkar saman í langan tíma..
Kem með eitthvað krassandi síðar..
kveðja, KiddiK
Bloggar | Breytt s.d. kl. 13:17 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
8.2.2007 | 18:18
Jæja..
.. nú er maður kominn heim aftur sem er ágætt. Nóg að gera í skólanum á næstunni og verkefna skil í næstuviku og svo miðvetrarpróf í vikunni þar á eftir svo maður þarf að halda vel á spöðunum á næstunni. Svo er háskólapólitíkin á lóðaríi núna og maður er ekki látinn í friði í skólanum, allir að bjóða manni samlokur, kaffi og hreint íslenskt vatn í flöskum fyrir utan kennslustofurnar. Maður getur orðið nett pirraður að vera stoppaður 7 sinnum á dag og vera spurður hvort maður hafi kosið og hvort maður hafi þá kosið rétt.. svo ætli eini staðurinn til að fá frið sé ekki bara Þjóðarbókhlaðan en maður þorir nú ekki þangað eftir að hafa lesið bloggið hans Atla en þar gengur víst prumpudólgur laus svo það er hvergi friður.
Annars er skrítið að vera kominn heim og maður saknar danska bjórsins en þó aðallega Helenu en hún var fljót að bóka far heim svo núna telur maður bara dagana. Við áttum líka fína helgi áður en ég fór en við fórum í heimsókn til Óskars og Sólrúnar í Köben þar sem við sáum Hard Rock stelpurnar dansa í stuttu pilsunum sínum, drukkum smá bjór, bökuðum pizzu og svo kíkti ég í smá hjólatúr með Óskari þar sem Racerinn var þaninn aðeins á þjóðveginum. Semsagt fín helgi. En jæja ætli maður verði ekki að fara að læra eitthvað, næst á dagskrá er að greina markaðshlutdeild og þróun markaðs Hentirétta (e. convenience food) á Íslandi. Bara stuð.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
2.2.2007 | 09:18
Skrautlegt í Rússlandi!
Ætli regnboginn í Rússlandi hafi orðið svo fátækur að hann ákvað bara að slá þessu upp í kæruleysi og breytt sér í snjó? Ég held að manni mundi bregða smá ef maður kæmi út einn morguninn og allt væri gult, rautt og blátt og ég held að varúðarráðstafanir yrðu viðameiri á Íslandi en á Rússlandi en þar er bara varað við að éta þetta því þetta er svo olíukennt. Kannski var þetta eitthvað æðra máttarvald að láta Pútín Rússlandsforseta heyra það eftir að hann hraunaði yfir samkynhneigða í vikunni og ákveðið að smella nokkrur skærum litum á landið til að sýna að þetta væri ekki svo slæmt.. Eitthvað mega gott í gangi.. eða hvað?
|
Marglitur og illa lyktandi snjór fellur í Rússlandi |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
1.2.2007 | 13:18
HM ekki búið..
Maður áttaði sig varla á því að mótið er ekkert búið, eftir tapið á móti Dönum var maður bara búinn á því og er blóðþrýstingurinn enn ekki kominn í rétt horf. Þó svo að 5. sætið sé eitthvað takmark núna nær maður ekki upp sömu spennu, HM toppaði í fyrradag í frábærum leik sem er sennilega skemmtilegasti leikur mótsins sem kominn er enda framlengdur og með öllu tilheyrandi.
Mér finnst líka frábært hvað okkar íslenska þjóð er lítil og allir með smá handboltabullu í sér, næstum allir landsmenn horfðu á leikinn og hvað margir munu hafa blótað á sömu sekúndu þegar Danmörk vann. Hvað ætli margir karlar hafi hreytt ónotum í konur sínar þetta sama kvöld í reiði sinni. Ég var hinsvegar ekki var við þennann ofsa spenning hérna í Danmörku, ég var niðrí bæ rétt fyrir leik og allt var troðið inn í búðunum, fólk var ekki að drífa sig heim að horfa á leikinn. Það var ekki einu sinni "upphitun" fyrir leikinn á TV2 heldur einhverjir 2 gaurar spjölluðu um leikinn í 2 mín áður en leikurinn byrjaði. En ég hinsvegar var á hraðferð þetta kvöld og dreif mig heim, horfði á leikinn, var pirraður, svo varð ég stoltur af strákunum og svo aftur reiður þegar sigurmarkið var sýnt í fréttunum seinna. En það er EM á næta ári og maður bara bíður spenntur.. Þetta er víst eina íþróttin sem við Íslendingar erum góð í sem er skemmtilegt að horfa á svo ekki skrítið að maður æsist smá upp við þetta.
|
Fimmta sætið á HM "opnar" dauðafæri á ÓL 2008 |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
31.1.2007 | 12:56
Íslenskt hugvit?
Oft er talað um íslenskt hugvit sem jákvæðan hlut en þarna sökkti það okkur. Ætli Aron Kristjáns hefði ekki átt að bíða með að kenna þeim þetta fyrr en eftir HM allavega. Íslendingar framarlega á öllum sviðum, nema fótbolta, er talað um og þarna kenndum við þeim að vinna okkur en nóg af gremju núna.
Maður er rosalega stoltur af strákunum þarna í Þýskalandi, þeir hafa staðið sig frábærlega og gáfust ekki upp fyrr en í fulla hnefana á móti góðu liði Dana. Maður fyllist bara þjóðarstolti hérna í Danmörku. En frábær leikur í gær, maður var með öran hjartslátt allan leikinn og tómu Ceres flöskurnar byrjuðu að safnast saman hérna í kotinu. Svo var spennufallið svo mikið að ég man ekki eftir meiru eða kannski var það bjórinn..
Annars erum við Helena að spá í að fara til Köben um helgina og gera eitthvað skemmtilegt svo ég verð einungis í kallfæri í gegnum gemsann, danska númerið, fyrir þá sem vilja slúðra einhverju í mig áður en ég kem á klakann aftur.
En jæja, áfram Ísland!
|
HM: Íslenskt hugvit á bak við sigurmark Dana |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
30.1.2007 | 14:16
Íslendingur á móti Íslendingum á HM?
Ég var að renna yfir fréttirnar á mbl áðan og þá kemur þessi frétt. Kannski var þetta bara "good call" hjá honum að velja stærri þjóðina og eiga frekari möguleika á verðlaunum eða hreinlega hann hafi enga samkennd með okkar litlu þjóð og vilji ekki einu sinni spila fyrir landslið okkar. Eiður Smári var nú mikið í útlöndum þar sem Arnór faðir hans var atvinnumaður í fótbolta, en hann spilar þó með ánægju með íslenska landsliðinu þó svo hann gæti verið í flestum landsliðum í heiminum. Ef þessi maður, Hr. Lindberg, vinnur leikinn fyrir Dani get ég ekki trúað að hann sofni með hreina samvisku í kvöld.
Jæja niðurtalning hafin, leikurinn hefst eftir 4 klst. og 43 mín og sálfræðistríðið er hafið.
|
HM: Eina örvhenta skytta Dana heltist úr lestinni |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (9)
28.1.2007 | 20:44
1. bloggið
Jæja nú er komið að því að maður fari aftur að skrifa eitthvað á blessað netið. Þar sem maður er alltaf á flakki þarf maður nú að geta látið vita af sér svo þetta var alveg tilvalin leið að ég held, en nóg um það.
Núna er maður staddur í Danmörku að sötra Ceres pilsner enda er verksmiðjan bara hérna rétt handan við hornið og getur maður fundið ger-fnykinn þegar maður fær sér labbitúr og er það bara ekkert nema kósý. Ég er búinn að vera hérna í fiskabúrinu hennar Helenu (íbúðin er ekki stór í sniðum) síðan 8. janúar í góðu yfirlæti og við höfðum það svona líka gott. Heimkomudagur er svo svo settur á 5. febrúar og mun maður koma heim og taka skólann með trukki og klára þessa önn jafn vel og síðustu og bæta í einingasafnið mitt í HÍ.
En þetta er nóg í bili, skrifa eitthvað merkilegra í framtíðinni. Þarf að laga eitthvað útlitið á þessu og setja inn linka á áhugaverð blog.
Þar til næst, kveðja Kiddi.
Bloggar | Breytt s.d. kl. 20:49 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
Um bloggið
KiddiK.blog.is
Tenglar
Blog
Skemmtileg blog
- Bönnur
- CJ Crew
- Ofur bloggarinn Heiðar
- Helena mín Helena bloggar frá Aarhus
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (28.1.): 0
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 6
- Frá upphafi: 302
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 6
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar



atlifannar
dadimar
mojo-jojo
bootwear
marteinn